FLEXLUX®
Sígild og glæsileg hönnun. Notagildi og þægindi í fyrirrúmi. FLEXLUX® hefur fjölda eiginleika sem veita mikil þægindi sem byggjast á fyrsta flokks hágæðaefnum. Þess vegna getum við boðið þér hámarksöryggi með 10 ára ábyrgð á stelli og frauðplastkjarna. FLEXLUX® er til í tveimur útgáfum, Ease og Sense.
Smelltu hér og skoðaðu kaupleiðbeiningar.
FLEXLUX® Ease
FLEXLUX® EASE fæst í þremur tegundum með mismunandi hönnun og frágangi ásamt steyptum álfótum í þremur litum. Með innbyggðum gasfjöðrunarbúnaði og höfuðstuðningi sem bæði er hægt að hækka, lækka og halla getur þú auðveldlega breytt um stöðu til að hámarka þægindi.
FLEXLUX® SENSE er bólstraður með fjórum lögum af svampi ofan á Nozag-fjöðrun. Á völdum flötum hefur leðrið verið fíngatað sem leyfir líkamanum að anda, sem tryggir hámarks þægindi.
Eiginleikar
- Hægt er að stilla hallann á höfuðpúðanum þannig að mesti mögulegi stuðningur fáist þegar þú lest, horfir á sjónvarp eða bara slappar af.
- Höfuðpúði með hæðarstillingu.
- Öflugur stillibúnaður til að stilla hallann á stólbakinu tryggir bestu vinnuvistfræðilegar stöðu.
- Fjögur lög af sérlega mjúkri bólstrun á Nozag-fjöðrun laga sig að minnstu hreyfingum þínu.
- Innbyggt Ari Channels TM og sérmeðhöndlað leður með götun gefur möguleika á öndun sem tryggir meiri þægindi.
- Stiglaus og þægileg stilling á stöðu stólbaksins tryggir mesta stuðning.
- Hægt er að fá grindina í mörgum vinsælum litum eða bólstraða og yfirdekkta.
- Hægt er að snúa stólnum 360°
- Steyptir álfætur í þremur mismunandi litum.
- Hægt er að stilla hæð stólsins með upphækkunarfótum. Aukabúnaður.
- Hægt er að stilla hæð skemilsins með upphækkunarfótum. Aukabúnaður.
FLEXLUX® Sense
FLEXLUX® SENSE fæst í sjö tegundum með mismunandi hönnun og saumum, ásamt steyptum álfótum í þremur litum.
FLEXLUX® SENSE er með jafnvægiskerfi sem bæði er hægt að stilla í samræmi við hæð og þyngd, og gerir þér kleift að stilla stólinn á þægilegan og fljótlegan hátt í ákjósanlega stöðu sem tryggir hámarks þægindi.
FLEXLUX® SENSE er bólstraður með fjórum lögum af svampi ofan á Nozag-fjaðrir. Á völdum flötum hefur leðrið verið fíngatað sem gerir líkamanum kleift að anda, sem tryggir hámarks þægindi.
Eiginleikar
- Innbyggður höfuðpúði.
- Öflugur stillibúnaður til að stilla hallann á stólbakinu tryggir bestu vinnuvistfræðilegar stöðu.
- Fjögur lög af sérlega mjúkri bólstrun sem lagar sig að minnstu hreyfingum þínum.
- Innbyggt Air Channels TM og sérmeðhöndlað leður með götun gefur möguleika á öndun sem tryggir meiri þægindi.
- Breiðir stólarmar auka á þægindin.
- Ytra byrði úr slitsterkum, formbeygðum krossviði í sex litum eða yfirdekkt.
- Búnaður sem byggir á þyngdarafli til að halla baki aftur, sem bæði er hægt að stilla eftir hæð og þyngd.
- Hægt er að snúa stólnum 360°.
- Steyptir álfætur í þremur mismunandi litum.
- Hægt er að stilla hæð stólsins með upphækkunarfótum. Aukabúnaður.
- Hægt er að stilla hæð skemilsins með einföldum upphækkunarfótum. Aukabúnaður.